Vinnulag

Aðeins ein fullyrðinganna um raunhyggjuviðmið er rétt:
Mikið af starfi raunhyggjumanna fer í að finna orsök og afleiðingu og orsakasamhengi milli frumbreyta og fylgibreyta
Raunhyggja (positivism) byggir á þeirri forsendu að rannsóknir á mannlegu atferli fari fram með sama hætti og hugvísindarannsóknir
Fyrirbærafræði (phenomenology) snýst um að greina orsök og afleiðingu í mannlegri hegðun
Rannsóknir innan kvennafræða (feminism research) eru nær undantekningalaust hagnýtar
Þegar við tölum um hagnýtar rannsóknir og grunnrannsóknir (applied on a basic reserach) byggir sú skipting á...
Þeim röksemdafærslum sem beitt er
Niðurstöðum
Tilgangi rannsóknarinnar
Því hvernig rannsóknarferlið er
Aðgerðabinding (operationalization) er:
Nauðsynleg forsenda hugtakaskilgreiningar (definition of concept)
Binding aðgerðar við tiltekna aðferð
Að koma hugtaki á mælanlegt form (making a concept measurable)
Binding aðgerða við eflingu lýðræðislegra stjórnarhátta
Í fyrirlestri þann 7. október var sagt frá því þegar Harry Truman vann forsetakosningarnar í USA 1948 og að daginn eftir hafi blaðið Chicago Daily Tribune greint frá sigri Thomas Dewey á Truman. Blaðið hafði farið í prentun áður en talningu lauk og það byggði fréttina á könnun sem gerð hafði verið skömmu fyrir kosningar og benti til sigurs Dewey. Könnunin hafði þann ágalla að þeir sem náðist í voru í mun meira mæli stuðningsmenn Dewey. Meginástæða þessara hrapallegu mistaka var:
Of lítið úrtak
Tilviljanabundin skekkja
Kerfisbundin skekkja
Ranglega var unnið úr könnuninni
Þegar rannsakandi leitast við að færa frá fáum einstökum tilvikum til almennrar reglu þá styðst viðkomandi við aðferðir:
Afleiðslu (deductive)
Alhæfingar (generalisation)
Ályktunartölfræði (inferential statistics)
Aðleiðslu (inductive)
Flokkur sem hyggst bjóða fram til Alþingis vill upplýsingar um væntanlegt fylgi sitt og fær nýútskrifaðan nemanda frá Háskólanum á Akureyri til að framkvæma fyrir sig könnun. Upphafleg hugmynd flokksfólks er að hringt verði í 350 mögulega kjósendur en sá nýútskrifaði leggur til að hringt verði í mun fleiri eða alls 1000 kjósendur. Hvers vegna leggur hann þetta til?
Til að minnka kerfisbundna skekkju (system error) í niðurstöðum
Til að minnka tilviljunarbundna skekkju (random error) í niðurstöðum
Til að minnka bæði kerfisbundnar og tilviljunarbundnar skekkjur
Til að hlutfall kjósenda sem könnunin nær til sé það stórt að könnunin sé marktæk
Vísindamaður rannsakar áhrif aldurs á kosningaþátttöku. Hann kemst að því að kosningaþátttaka yngra fólks, sérstaklega undir þrítugu er mun lakari en annarra aldurshópa. Þá kemst hann einnig að því að þessu munur á aldurshópum er enn meiri utan Höfuðborgarsvæðisins. Í þessu dæmi eru:
Aldur óháð-/frumbreyta (independent variable) og búseta háð-/fylgibreyta (dependent variable)
Kjörsókn óháð-/frumbreyta og aldur háð-/fylgibreyta
Kjörsókn óháð-/frumbreyta og búseta háð-/fylgibreyta
Aldur óháð-/frumbreyta og kjörsókn háð-/fylgibreyta
Ein fullyrðinganna að neðan er röng:
Ávallt skal hafa heiti töflu ofan við töfluna
Þegar greint er frá innihaldi viðtala í texta á að leggja áherslu á að endursegja og nota beinar tilvitnanir sparlega
Kökurit eru fyrst og fremst hentug til að bera saman hópa
Ein fullyrðinganna þriggja að ofan er röng
Það sem spurt er um segir til um stöðugleika útkomu frá einni mælingu til annarrar. Ef eiginleiki þess sem er mælt breytist ekki en niðurstaða endurtekinnar mælingar er talsvert önnur er mælingin...
Réttmæt
Áreiðanleg
Óréttmæt
Óáreiðanleg
Þessi tegund rannsókna er notuð þegar þekking á viðfangsefninu er af mjög skornum skammti. Hér er verið að lýsa:
Leitandi rannsókn (explorative)
Ályktandi rannsókn (evaluation research)
Hagnýt rannsókn (applied research)
Þreifandi rannsókn (searching research)
Hvað einkennir ritrýni á sviði vísinda og fræða? Hvað af eftirfarandi lýsingum á best við?
Í ritrýndu verki hefur aðeins verið tryggt að allar vísanir til heimilda séu réttar
Ritrýnt verk er almennt ekki ritstýrt
Ritrýnt verk er alltaf ritrýnt af sérfræðingum
Ritrýnt verk er ritrýnt af ritrýnum og ritstýrt af ritstjóra/ritstjórum
Í hvaða tilfellum er heimilt að nota efni af netinu (e. The internet) við ritgerðarsmíð án þess að vísa til heimildar?
Þegar þú umorðar efnið sem þú tekur af netinu í eigin ritgerð
Þegar þú tekur aðeins örstutta textabúta af netinu og setur í eigin ritgerð
Þegar það sem þú tekur af netinu fellur undir almenna þekkingu
Þegar efnið sem þú tekur af netinu hefur birst á mörgum mismunandi vefsíðum
Rannsóknarskýrsla skiptist niður í eftirfarandi kafla:
Formáli, Meginmál (sem skiptist gjarnan upp í undirkafla), Samantekt
Inngangur, Aðferðir, Niðurstöður, Umræður
Inngangur, Rannsóknin, Niðurstöður
Engin þessara lýsinga er rétt
Fræðafólk sem styðst við eigindlegar rannsóknir vinnur:
Með stór úrtök
Eingöngu með reynslu kvenna
Með lítil úrtök
Eingöngu með fólki á aldrinum 18-65 ára
Eigindlegar rannsóknir byggja á fyrirbærafræðilegri nálgun en í slíkum rannsóknum telst:
Áreiðanleiki takmarkaður og réttmæti takmarkað
Áreiðanleiki mikilli og réttmæti mikið
Áreiðanleiki mikill en réttmæti takmarkað
Áreiðanleiki takmarkaður en réttmæti mikið
Þátttökuathugun (participant observation) er rannsókn:
Sem framkvæmd er með spurningalistakönnunum
Sem framkvæmd er í sem náttúrulegustu umhverfi þátttakenda
Sem framkvæmd er í tilraunastofum
Sem framkvæmd er með þátttöku dýra
Karl Popper skilgreindi mun á vísindum og gervivísindum út frá...
Getgátum sínum
Hrekjanleika kenninganna
Tilvist fyrirbæra
Marx og Freud
Er vísindasamfélagið skv. Vilhjálmi Árnasyni undanþegið siðferðiskröfum?
Já vegna þess að ábati fyrir samfélagið af vísindarannsóknum er svo mikið að ekki þarf að velta fyrir sér siðferðilegum álitamálum
Já, vegna þess að vísindamenn leita sannleikans en siðfræðin byggist á smekk hvers og eins
Nei, vegna þess að nauðsynlegt er að ræða hvers kyns siðferðileg álitamál og byggja skoðun sína á rökum fyrir þeirri niðurstöðu sem valin er
Liðir a, b og c eru rangir
Hvaða fjórar reglur liggja til grundvallar í siðfræði rannsókna?
Sjálfræðisreglan, Skaðleysisreglan, Velgjörðarreglan og Réttlætisreglan
Skaðsemisreglan, Velferðarreglan, Velgjörðarreglan og Réttlætisreglan
Lýðræðisreglan, Skaðsemisreglan, Velgjörðarreglan og Réttlætisreglan
Ekkert ofangreint
Megindlegar rannsóknir má gróflega flokka í tvo flokka:
Tilrauna- og hálftilraunasniðsrannsóknir
Íhlutunarrannsóknir og lýsandi rannsóknir
Slembivals- og íhlutunarrannsóknir
Ferilsniðsrannsóknir og þversniðsrannsóknir
Í niðurstöðukafla megindlegrar rannsóknargreinar er:
Sagt frá tilgangi og aðferðafræði rannsóknar
Niðurstöður rannsóknar raktar og bornar saman við niðurstöður fyrri rannsókna
Niðurstöður rannsóknarinnar raktar í texta, myndum og töflum
Sagt frá vali á þátttakendum og aðferðafræði rannsóknarinnar
Ingólfur rannsakar streitu meðal nemenda í iðjuþjálfunarfræði og hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Hann hefur mestan áhuga á að skoða hvernig streita hefur áhrif á daglegar venjur nemenda. Til þess að tryggja að niðurstöður rannsóknarinnar endurspegli raunsanna mynd (creditability) af rannsóknarefninu væri best ef Ingólfur myndi:
Spyrja nemendur opinna spurninga
Nota fjölbreytilegar aðferðir við að safna gögnum
Nota slembiúrtak til að fá þátttakendur
Fylgjast með nemendum án þess að þeir viti af því
Í etnógrafíu er leitast við að:
Sýna hvernig hugtök og fyrirbæri tengjast innbyrðis og hafa áhrif hvert á annað
Lýsa því hvaða merkingu ákveðin reynsla hefur fyrir fólk
Tengja saman rannsóknir og starf
Draga upp heildarmynd af daglegu lífi og menningu afmarkaðs hóps
Þegar niðurstöður eigindlegrar rannsóknar eru skrifaðar er mikilvægt að:
Láta textann spretta upp úr gögnunum
Setja upplýsingar fram í tölum og töflum
Forðast beinar tilvitnanir í frásagnir þátttakenda
Alhæfa út frá gögnunum
Hvað af eftirfarandi eru ekki eigindleg gögn (qualitative data)?
Lýsingar höfunda á þemum sem urðu til við greiningu
Afrituð viðtöl (transcribed interviews), ljósmyndir (photos) og opinber skjöl (official documents)
Opinber skjöl (official documents), myndir (photos) og teikningar (drawings)
Skráðar lýsingar frá athugunum á vettvangi (field notes)
Hvaða fullyrðing er rétt um þrep fyrirsagna:
Þrep 1 fyrirsögn er bara með hástöfum, vinstri jöfnuð og feitletruð
Þrep 2 fyrirsögn er vinstri jöfnuð, feitletruð og skáletruð
Þrep 3 fyrirsögn er inndregin, feitletruð og skáletruð
Þrep 1 fyrirsögn er staðsett í miðjunni, feitletruð og með 12 punkta letri
{"name":"Vinnulag", "url":"https://www.quiz-maker.com/QPREVIEW","txt":"Aðeins ein fullyrðinganna um raunhyggjuviðmið er rétt:, Þegar við tölum um hagnýtar rannsóknir og grunnrannsóknir (applied on a basic reserach) byggir sú skipting á..., Aðgerðabinding (operationalization) er:","img":"https://www.quiz-maker.com/3012/images/ogquiz.png"}
Powered by: Quiz Maker